Það eru átta leikir á dagskrá í Lengjubikarnum í dag og þar af er einn í A-deild.
Vestri tekur á móti Stjörnunni í frestuðum leik sem átti upprunalega að fara fram í gær. Stjarnan er með fullt hús stiga og búin að tryggja sér sigur í riðlinum sama hvernig leikurinn endar á Ísafirði, á meðan Vestri er með þrjú stig fyrir lokaumferðina.
Í B-deildinni eiga Selfoss og Dalvík/Reynir heimaleiki í karlaflokki.
Í kvennaflokki spilar ÍA við HK í spennandi slag í B-deildinni þar sem liðin eru jöfn á stigum sem stendur.
Að lokum eru leikir á dagskrá í C-deildum karla og kvenna.
Lengjubikar karla - A deild, riðill 1
15:00 Vestri - Stjarnan (Kerecisvöllurinn)
Lengjubikar karla - B deild, riðill 2
13:00 Selfoss - Sindri (JÁVERK-völlurinn)
Lengjubikar karla - B deild, riðill 4
14:00 Dalvík/Reynir - Höttur (Dalvíkurvöllur)
Lengjubikar kvenna - B deild
12:00 ÍA - HK (Akraneshöllin)
Lengjubikar kvenna - C deild, riðill 1
16:00 KÞ - Völsungur (Þróttheimar)
Lengjubikar karla - C deild, riðill 1
17:00 Hafnir - Uppsveitir (Nettóhöllin)
Lengjubikar karla - C deild, riðill 2
17:00 RB - Skallagrímur (Knatthús Hauka)
Lengjubikar karla - C deild, riðill 3
14:00 KFR - BF 108 (Helluvöllur)
Athugasemdir


