Tottenham og Newcastle hafa áhuga á Grealish - Newcastle bjartsýnt á að fá Guehi - Elanga í læknisskoðun
   þri 08. júlí 2025 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vardy á Old Trafford?
Mynd: EPA
Manchester United hefur verið boðið að fá Jamie Vardy í sínar raðir en hann er án félags eftir að hafa yfirgefið Leicester í síðasta mánuði.

Samkvæmt heimildum Athletic hefur United verið boðið að fá Vardy, Dominic Calvert-Lewin og Callum Wilson, en þeir eru allir án félags.

Í grein Athletic er sagt að ef United missir af sínum aðalskotmörkum, þá gæti félagið reynt við einn af þessum þremur.

Ollie Watkins og Hugo Ekitike eru ofarlega á óskalistanum og þar var einnig Viktor Gyökeres, en hann er á leið til Arsenal.
Athugasemdir