
„Hann er með mjög svipaða hugmyndafræði og Arnar, hvernig hann sér fótbolta,“ segir Ísak Bergmann Jóhannesson aðspurður um pabba sinn Jóhannes Karl Guðjónsson, aðalþjálfara AB í C-deild í Danmörku.
„Ég held að AB meti hann mikils virði, eins og sást þegar ÍA reyndi að fá hann. Hann er á mjög góðum stað á sínum þjálfaraferli. Ég vona að þeir fari upp.“
„Það væri geggjað fyrir hann að vera kominn í næst efstu deild í Danmörku sem aðalþjálfari, ég er gríðarlega stoltur af honum.“
Yngri bróðir Ísaks, Daníel Ingi Jóhannesson, skoraði með U19 landsliðinu gegn sameinuðu arabísku furstadæmunum á æfingamóti í Slóveníu um helgina. Daníel er einnig að komast inn í leikmannahóp Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni.
„Ég er líka mjög stoltur af honum. Hann þarf að „trust the process“. Vonandi fær hann mínútur með aðalliði Nordsjælland á þessu tímabili. Hann er að þróast mjög vel sem leikmaður.“
Athugasemdir