Mainoo, Konate og Mac Allister eftirsóttir - Tonali með heimþrá - Semenyo til Liverpool?
   lau 08. nóvember 2025 13:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Man Utd tekur forystuna gegn Tottenham
Mynd: EPA
Man Utd hefur tekið forystuna gegn Tottenham í Lundúnum en það var Bryan Mbeumo sem skoraði markið.

Mbeumo braut ísinn eftir hálftíma leik eftir vandræðagang í vörn Tottenham.

Micky van de Ven ætlaði að hreinsa boltann út úr teignum en sparkaði boltanum í Bruno Fernandes. Man Utd hélt sókninni áfram og boltinn barst til Amad Diallo sem átti fyrirgjöf á kollinn á Mbeumo sem skoraði með skalla.

Eins og staðan er núna fer Man Utd upp í annað sæti deildarinnar. Liðið er eins og er stigi á undan Man City og tveimur stigum á undan Liverpool sem mætast á morgun.

Sjáðu markið hér

Athugasemdir
banner
banner