Munoz, Gallagher og Adams orðaðir við Man Utd - Man City vill fá Marc Guehi
banner
   fös 07. nóvember 2025 20:00
Elvar Geir Magnússon
Gagnkvæmt þakklæti - „Verð honum ævinlega þakklátur“
Arteta og Xhaka faðmast.
Arteta og Xhaka faðmast.
Mynd: EPA
Granit Xhaka mætir Arsenal á morgun í fyrsta sinn síðan hann yfirgaf félagið. Xhaka hefur spilað frábærlega síðan hann gekk í raðir Sunderland og það verður tilfinningarík stund fyrir hann á morgun.

Xhaka fer fögrum orðum um Mikel Arteta, stjóra Arsenal. „Hann breytti mér algjörlega, sem manneskja, innan sem og utan vallar," sagði Xhaka í viðtali og þakklætið er gagnkvæmt.

Arteta sagði á fréttamannafundi í dag að hann hefði elskað hverja mínútu þeirra saman.

„Við reyndum að leiðbeina honum, finna væntumþykjuna. Hann gerði mig að betri stjóra, hjálpaði félaginu að verða betra. Ég verð honum ævinlega þakklátur," sagði Arteta.

„Sunderland gerðu ein bestu kaup sumargluggans með því að fá hann. Það sést á áhrifunum sem hann hefur haft. Liðið hefur byrjað tímabilið virkilega vel."

Sunderland og Arsenal mætast 17:30 á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 16 11 1 4 38 16 +22 34
3 Aston Villa 16 10 3 3 25 17 +8 33
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 16 7 5 4 20 15 +5 26
6 Man Utd 16 7 5 4 30 26 +4 26
7 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
8 Sunderland 16 7 5 4 19 17 +2 26
9 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
10 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
11 Tottenham 16 6 4 6 25 21 +4 22
12 Newcastle 16 6 4 6 21 20 +1 22
13 Bournemouth 16 5 6 5 25 28 -3 21
14 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
15 Brentford 16 6 2 8 22 25 -3 20
16 Nott. Forest 16 5 3 8 17 25 -8 18
17 Leeds 16 4 4 8 20 30 -10 16
18 West Ham 16 3 4 9 19 32 -13 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner