Hörmulegt gengi Leicester City hélt áfram um helgina þegar liðið gerði jafntefli við Ipswich Town í Championship deildinni.
Þessir fyrrum Englandsmeistarar eru því núna afar óvænt í fallsæti, með 35 stig eftir 36 umferðir af deildartímabilinu eftir að hafa fengið dæmd 6 mínusstig vegna brota á fjármálareglum enska boltans.
Jafnteflið gegn Ipswich var ellefti leikur liðsins í röð án sigurs í öllum keppnum og voru menn ánægðir með stigið gegn erfiðum andstæðingum, en Leicester færði sig um leið nær því að jafna ótrúlegt met í Championship deildinni.
Þegar Leicester fékk jöfnunarmarkið á sig á 76. mínútu varð það 30. deildarleikurinn í röð sem liðinu mistókst að halda markinu sínu hreinu á yfirstandandi tímabili. Liðið hefur ekki haldið hreinu síðan í markalausu jafntefli gegn toppliði Coventry síðasta september.
Þegar sagan er skoðuð þá eru ekki mörg félagslið sem hafa afrekað þetta frá síðustu aldamótum. Úlfarnir fóru í gegnum 30 leiki án þess að halda hreinu í úrvalsdeildinni tímabilið 2011-12 en Colchester United FC á metið eftir að hafa mistekist að halda hreinu í 38 deildarleiki í röð tímabilið 2007-08.
Colchester lék í Championship deildinni það árið og hríðféll. Til gamans má geta að Leicester féll með Colchester niður um deild, en vann svo sögulegan Englandsmeistaratitil aðeins átta árum síðar.
Það eru tíu umferðir eftir af deildartímabilinu og því hefur Leicester enn tíma til að bæta met Colchester.
Stuðningsmenn félagsins eru ósáttir með slakt gengi og er hluti þeirra byrjaður að kenna eigendunum um. Eigendurnir virðast þó vera að gera allt í sínu valdi til að rétta úr kútnum en það gæti reynst afar erfitt ef Leicester fellur niður um deild annað ár í röð, eftir fall úr úrvalsdeildinni í fyrra.
Stuðningsmenn óttast að félagið falli niður í League One deildina á tíu ára afmælisári Englandsmeistaratitilins sögulega og hafa verið að skipuleggja mótmæli fyrir heimaleiki liðsins.
Athugasemdir


