Niklas Söderberg yfirgaf sænska félagið Öster eftir að félagið féll úr sænsku úrvalsdeildinni. Hann er til viðtals í sænskum miðli og segir að það sé áhugi á sér, bæði frá Svíþjóð og erlendis frá.
Svíinn er 29 ára, er án félags og er í velta fyrir sér hvert næsta skrefið á hans ferli verður. Hann lék tíu leiki á síðasta tímabili í sænsku úrvalsdeildinni og skoraði eitt mark.
Svíinn er 29 ára, er án félags og er í velta fyrir sér hvert næsta skrefið á hans ferli verður. Hann lék tíu leiki á síðasta tímabili í sænsku úrvalsdeildinni og skoraði eitt mark.
„Það hefur verið áhugi úr Superettan (sænsku B-deildinni)," segir Söderberg, sem er sóknarsinnaður miðjumaður, við Fotbollskanalen.
„Það hefur líka verið áhugi frá Íslandi, Kasakstan, einhverjum liðum í Grikklandi og úr næstefstu deild í Suður-Kóreu. Frá sömum félögum hefur verið konkret áhugi og sums staðar jafnvel meira en það."
„Mér líður eins og fleiri lönd séu að að verða opnari fyrir því að fá inn leikmenn og því sé það að verða algengara," sagði hann þegar hann var spurður út í áhuga frá Kasakstan.
Félagaskiptaglugginn í Svíþjóð lokar 25. mars en hann er opinn út 29. apríl hér á Íslandi. Til þessa hefur Söderberg spilað allan sinn feril í Svíþjóð og flestir leikirnir verið í B-deildinni.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði KA áhuga á Söderberg á síðasta ári, ekki fylgdi sögunni hvort félagið væri að skoða hann í dag. Hjá Öster lék Söderberg með Alex Þór Haukssyni, Rúnari Þór Sigurgeirssyni og Þorra Mar Þórissyni. Á þeim tíma var Srdjan Tufegdzic - Túfa - þjálfari liðsins.
Athugasemdir


