
Í kvöld, klukkan 19:15, tekur HK á móti ÍR í 2. umferð Lengjudeildarinnar. HK-ingar ætla að heiðra Leif Andra Leifsson en hann lagði skóna á hilluna í vor.
Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta snemma og heiðra Herra HK.
Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta snemma og heiðra Herra HK.
Lestu um leikinn: HK 1 - 1 ÍR
Leifur Andri lék allan sinn feril með HK og er lang leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins með 420 leiki og í þeim skoraði miðvörðurinn tíu mörk.
ÍR vann Völsung í 1. umferð en HK gerði 1-1 jafntefli við Þór í Boganum á Akureyri.
Athugasemdir