Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni HM: Trylltur leikur í Belgíu - Frændur okkar sigruðu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru sex leikir fram í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM í dag þar sem Belgía lagði Wales að velli í æsispennandi slag.

Belgar komust í þriggja marka forystu á fyrsta hálftímanum þar sem Romelu Lukaku, Youri Tielemans og Jeremy Doku skoruðu mörkin.

Gestirnir frá Wales ætluðu þó ekki að gefast upp. Harry Wilson minnkaði muninn fyrir leikhlé og tókst lærisveinum Craig Bellamy að jafna með mörkum frá Sorba Thomas og Brennan Johnson í síðari hálfleik.

Romelu Lukaku kom boltanum í netið á 81. mínútu en markið ekki dæmt gilt eftir langa athugun í VAR-herberginu. Það kom þó ekki að sök fyrir Belga því Kevin De Bruyne skoraði sigurmark leiksins á 88. mínútu, eftir undirbúning frá Tielemans.

Lokatölur urðu því 4-3 í nokkuð jöfnum slag. Belgar eiga fjögur stig eftir tvær fyrstu umferðirnar, á meðan Wales er með sjö stig eftir fjórar umferðir.

Norður-Makedónía trónir á toppi riðilsins eftir 0-1 sigur gegn Kasakstan í dag. Makedónar eru með átta stig eftir fjórar umferðir.

Erling Braut Haaland skoraði þá eina mark leiksins er frændur okkar frá Noregi lögðu Eistland að velli. Haaland skoraði á 62. mínútu og verðskulduðu Norðmenn sigurinn eftir mikla yfirburði á vellinum.

Noregur er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir, þar sem liðið skoraði meðal annars fjögur mörk gegn Ísrael og þrjú gegn Ítalíu.

Ítalir eru með þrjú stig eftir 2-0 sigur gegn Moldóvu í kvöld. Giacomo Raspadori og Andrea Cambiaso skoruðu mörkin.

Frændur okkar í Færeyjum lentu óvænt undir í fyrri hálfleik gegn Gíbraltar en snéru stöðunni við í síðari hálfleik og skópu verðskuldaðan 2-1 sigur eftir að hafa sýnt mikla yfirburði á vellinum.

Færeyingar eiga þrjú stig eftir þrjár umferðir á meðan Gíbraltar er án stiga. Gunnar Vatnhamar lék allan leikinn og kom Joan Simun Edmundsson inn af bekknum.

Að lokum rúllaði Króatía yfir Tékkland og vann 5-1 þar sem Andrej Kramaric var markahæstur með tvennu. Luka Modric skoraði og lagði upp og þá komst Ivan Perisic einnig á blað.

Belgium 4 - 3 Wales
1-0 Romelu Lukaku ('15 , víti)
2-0 Youri Tielemans ('19 )
3-0 Jeremy Doku ('27 )
3-1 Harry Wilson ('45 , víti)
3-2 Sorba Thomas ('51 )
3-3 Brennan Johnson ('70 )
4-3 Kevin De Bruyne ('88 )

Kasakstan 0 - 1 Norður-Makedónía
0-1 Aleksandar Trajkovski ('33 )

Eistland 0 - 1 Noregur
0-1 Erling Haaland ('62 )

Ítalía 2 - 0 Moldóva
1-0 Giacomo Raspadori ('40 )
2-0 Andrea Cambiaso ('50 )

Færeyjar 2 - 1 Gíbraltar
0-1 James Scanlon ('23 )
1-1 Arni Frederiksberg ('71 )
2-1 Patrik Johannesen ('86 )

Króatía 5 - 1 Tékkland
1-0 Andrej Kramaric ('42 )
1-1 Tomas Soucek ('58 )
2-1 Luka Modric ('62 , víti)
3-1 Ivan Perisic ('68 )
4-1 Ante Budimir ('72 , víti)
5-1 Andrej Kramaric ('75 )
Athugasemdir
banner