Hægri bakvörðurinn Vanderson verður að öllum líkindum ekki með brasilíska landsliðshópnum sem fer á HM í sumar.
Vanderson verður frá keppni að minnsta kosti næstu þrjá mánuði eftir að hann gekkst undir aðgerð í gær. Hann gæti því verið klár í slaginn um það leyti sem heimsmeistaramótið er að hefjast, en hann yrði þá ekki í neinu leikformi.
Vanderson er 24 ára gamall og stimplaði sig inn sem lykilmaður í varnarlínu AS Monaco á síðustu leiktíð. Hann hefur staðið sig vel með brasilíska landsliðinu undir stjórn Carlo Ancelotti og er næstefstur í goggunarröð hægri bakvarða - á eftir Wesley Franca leikmanni Roma.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir brasilíska landsliðið og verður áhugavert að fylgjast með hvern Ancelotti velur í hópinn fyrir HM til að berjast við Wesley um bakvarðarstöðuna.
Vitinho, fyrrum leikmaður Burnley sem er lykilmaður hjá Botafogo í heimalandinu í dag, kemur sterklega til greina ásamt Yan Cuoto hjá Borussia Dortmund og Emerson Royal, fyrrum leikmanni Tottenham og AC Milan sem leikur í dag fyrir Flamengo.
Hinn þaulreyndi Danilo, fyrrum leikmaður Juventus, Manchester City og Real Madrid, kemur einnig til greina. Hann leikur fyrir Flamengo í dag og verður 35 ára í júlí, en hefur verið að glíma við meiðslavandræði.
Athugasemdir



