Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 10:25
Kári Snorrason
Daníel Tristan skoraði og lagði upp með U21 liði Malmö
Mynd: Malmö FF
Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði og lagði upp í 3-0 sigri U21 liði Malmö gegn U21 liði Falkenbergs.

Daníel var ónotaður varamaður aðalliðsins þegar liðið vann 2-1 sigur á Halmstad í deildarbikarnum á sunnudaginn.

Hann sneri þar aftur í leikmannahóp aðalliðsins eftir að hafa verið utan hóps í tveimur leikjum þar áður og verður að teljast líklegt að hann hafi verið að glíma við meiðsli.

Næsti leikur aðalliðsins er næstkomandi sunnudag gegn ríkjandi deildarmeisturum Mjallby í deildarbikarnum en vikuna þar á eftir hefst sænska deildin.

Mark Daníels og stoðsendinguna má sjá í færslunni hér að neðan.


Athugasemdir
banner