Tottenham er í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni en það má gera ráð fyrir að það verði miklar breytingar hjá félaginu í sumar.
TalkSPORT segir að Tottenham sé að undirbúa það að losa fjölda leikmanna.
TalkSPORT segir að Tottenham sé að undirbúa það að losa fjölda leikmanna.
Í grein miðilsins kemur fram að það séu einungis níu leikmenn öruggir hjá félaginu, aðrir megi fara.
Á meðal þeirra sem mega fara er Cristian Romero, miðvörður liðsins. Tottenham er sagt trúa því að það væri best fyrir alla aðila að Romero leiti á önnur mið.
Þeir leikmenn sem Spurs ætlar að halda eru Micky van de Ven, Dominic Solanke, Conor Gallagher, Mohammed Kudus, Xavi Simons, Archie Gray, Lucas Bergvall, James Maddison og Dejan Kulusevski.
Það er alls ekki útilokað að Tottenham leiki í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands á næsta tímabili.
Athugasemdir

