Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 11:24
Kári Snorrason
Erfitt að segja Viktori Bjarka að hann yrði ekki í hópnum
Viktor hefur verið einn af fáum ljósum punktum hjá FCK á annars erfiðu tímabili.
Viktor hefur verið einn af fáum ljósum punktum hjá FCK á annars erfiðu tímabili.
Mynd: EPA
Ungstirnið Viktor Bjarki Daðason var skilinn utan leikmannahóps FCK er liðið vann 2-1 sigur á Viborg í undanúrslitum danska bikarsins á síðastliðinn laugardag.

Youssoufa Moukoko, fyrrum leikmaður Dortmund, byrjaði fremstur og nýtti tækifærið vel þar sem hann skoraði bæði mörk FCK.

Jacob Neestrup, þjálfari FCK, segir við danska miðilinn Bold það hafa verið erfitt að skilja Viktor eftir utan hóps í viðtali eftir leik.

„Ákvörðunin um að skilja Viktor eftir utan hóps er kannski umdeild því hann hefur spilað mikið. Við ætlum að byrja með hraða í liðinu og horfum líka til þess hvaða leikmenn geta breytt leiknum okkur í hag.

En það var erfitt að tilkynna Viktori þetta, sérstaklega þar sem hann og liðið hafa átt erfitt uppdráttar undanfarið. Hann verður hins vegar klár í að leggja vinnu inn aftur á morgun og hann mun fá mikinn spiltíma á næstunni,“
sagði Neestrup að lokum.
Athugasemdir
banner
banner