Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 10. mars 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Nuno: Við getum farið alla leið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Nuno Espírito Santo var mjög ánægður eftir að lærlingar hans í liði West Ham United lögðu Brentford að velli í 16-liða úrslitum enska bikarsins í gærkvöldi.

Nuno gerði sjö breytingar á byrjunarliðinu til að hvíla lykilmenn fyrir komandi átök í fallbaráttunni og var mjög ánægður með framlag sinna manna. Hamrarnir náðu forystunni í tvígang en Brentford tókst að jafna í bæði skiptin og endaði leikurinn í vítaspyrnukeppni.

„Ég er virkilega stoltur af leikmönnum og stuðningsmönnum. Stuðningsmenn eiga þennan sigur skilið fyrir að hafa stutt við bakið á okkur í gegnum djúpa dali. Við spiluðum flottan leik í dag og erum himinlifandi með að fara áfram í næstu umferð," sagði Espírito Santo, en West Ham tekur á móti Leeds United í 8-liða úrslitunum. Liðin eru bæði í fallbaráttu í úrvalsdeildinni.

„Strákarnir spiluðu virkilega vel gegn mjög sterkum andstæðingum. Við stjórnuðum hraðanum og sköpuðum mikið af færum í opnum og skemmtilegum leik. Bæði lið voru að spila til að vinna. Það er mikilvægt að strákarnir trúi því að við getum farið alla leið í þessari keppni, núna erum við bara einum leik frá Wembley.

„Ég er mjög ánægður með strákana sem hafa ekki fengið mörg tækifæri síðustu vikur, þeir stóðu sig vel í dag. Það eru margir leikmenn sem leggja mikið á sig á hverri einustu æfingu en fá svo ekki endilega að spila. Þeir stóðu sig vel í dag og ég er ánægður, það er mikilvægt að hafa virka samkeppni um byrjunarliðssæti."


West Ham tekur á móti stórveldi Manchester City um næstu helgi áður en liðið heimsækir Aston Villa í erfiðum úrvalsdeildarslag fyrir landsleikjahléð í lok mánaðar.

Nuno veit að þetta verða afar erfiðir leikir en markmiðið er að reyna að fá eitthvað úr þeim. Hamrarnir eru í fallsæti sem stendur, með 28 stig eftir 29 umferðir.

Nuno var að lokum spurður út í Crysencio Summerville sem hefur verið besti leikmaður West Ham á árinu. Hann kom inn af bekknum gegn Brentford en meiddist í framlengingunni.

„Hann fann fyrir höggi og við vitum ekki alveg hversu alvarlegt þetta er. Við höfum áhyggjur en við getum ekki gert neitt nema að bíða eftir niðurstöðum úr rannsóknum.

„Núna fer öll einbeitingin á endurheimt til að vera tilbúnir í slaginn fyrir leikinn gegn City. Við njótum sigursins í nokkrar klukkustundir í kvöld en svo þurfum við að setja alla einbeitingu á næsta leik."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
8 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
9 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner