Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 17:00
Elvar Geir Magnússon
Á titil fyrir England en ætlar að skipta í Austurríki fyrir HM
Carney Chukwuemeka hefur spilað 26 leiki með Dortmund á tímabilinu, skorað þrjú mörk og átt eina stoðsendingu.
Carney Chukwuemeka hefur spilað 26 leiki með Dortmund á tímabilinu, skorað þrjú mörk og átt eina stoðsendingu.
Mynd: EPA
Austurríska fótboltasambandið er að vinna í því að fá leikheimild fyrir Carney Chukwuemeka fyrir HM í sumar.

Chukwuemeka, sem er 22 ára sóknarmiðjumaður, yfirgaf Chelsea og gekk í raðir Borussia Dortmund fyrir 24 milljónir punda síðasta sumar. Chelsea fékk hann frá Aston Villa þegar hann var 18 ára gamall og þá talinn einn efnilegasti leikmaður Bretlands.

Árið 2022 var hann lykilmaður í enska U19 landsliðinu sem varð Evrópumeistari. Alls hefur hann leikið 25 leiki fyrir yngri landslið Englands.

Foreldrar Chukwuemeka eru nígerískir en hann fæddist í austurríska bænum Eisenstadt árið 2003. Hann bjó í Austurríki fyrstu ár ævi sinnar, áður en fjölskyldan fluttist til Englands.

Þar sem Chukwuemeka hefur ekki leikið A-landsleik fyrir England þá er má hann samkvæmt FIFA reglum skipta yfir í Austurríki.

Hann hefur spilað 26 leiki með Dortmund á tímabilinu, skorað þrjú mörk og átt eina stoðsendingu.

Ralf Rangnick, fyrrum stjóri Manchester United, stýrir austurríska landsliðinu sem er með Argentínu, Alsír og Jórdaníu í riðli á HM í sumar en keppnin verður í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Athugasemdir
banner
banner