U19 ára lið ÍA, 2. flokkur félagsins, er á leið til Danmerkur og Svíþjóðar og mun þar spila æfingaleiki við jafnaldra sína í Nordsjælland, AB og Helsingborg.
ÍA varð bikarmeistari í 2. flokki í fyrra og er leikmannahópur liðsins ansi öflugur.
ÍA varð bikarmeistari í 2. flokki í fyrra og er leikmannahópur liðsins ansi öflugur.
Á meðal leikmanna í hópnum eru Rafael Máni Þrastarson sem ÍA keypti frá Fjölni í vetur, Brynjar Óðinn Atlason og Styrmir Jóhann Ellertsson sem hafa spilað hlutverk í meistaraflokki í vetur, Gabríel Snær Gunnarsson sem er sterklega orðaður við Elfsborg og Arnór Valur Ágústsson sem kom við sögu í átta leikjum í Bestu deildinni í fyrra. Þeir Robert Elli Vífilsson og Jón Breki Guðmundsson komu einnig við sögu á síðasta tímabili og eru á meðal leikmanna sem munu spila leikina.
Alls eiga leikmenn í hópnum yfir 80 unglingalandsleiki að baki.
Þessu tengdu má segja frá því að 2. flokks lið KA mætir danska U19 liði Viborg í dag, sá leikur hófst 12:15. Danska liðið mætir svo Þór í kvöld. KA varð Íslandsmeistari í 2. flokki 2024 og Þór varð Íslandsmeistari í fyrra.
Athugasemdir




