Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Staðfestir leikdagar fyrir Meistarakeppni KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ tilkynnti í dag að búið væri að ákveða leikdaga fyrir Meistarakeppni KSÍ, meistarar meistaranna, karla og kvenna. Þar mæta Íslandsmeistararnir liði bikarmeistaranna.

Meistarakeppni karla fer fram sunnudaginn 29. mars þar sem Íslandsmeistararnir í Víkingi Reykjavík og bikarmeistararnir í Vestra mætast. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli kl. 14:00.

Meistarakeppni kvenna fer fram þriðjudaginn 31. mars þar sem Íslands- og bikarmeistararnir í Breiðabliki og FH mætast. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli og hefst hann kl. 19:30. FH endaði í 2. sæti bæði í bikarnum og Bestu deildinni síðasta sumar.

Báðir leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á RÚV.

Besta deild karla hefst 10. apríl með opnunarleik Víkings og Breiðabliks.

Besta deild kvenna hefst 24. apríl og á Breiðablik leik gegn Þrótti á sama tíma og Víkingur mætir Stjörnunni á fyrsta leikdegi.
Athugasemdir
banner