Stuðningsmaður Barcelona sem ætlaði á leikinn gegn Newcastle í Meistaradeildinni endaði á röngum St James’ Park leikvangi, um 590 kílómetrum frá heimavelli Newcastle.
Heimavellir Newcastle og C-deildarliðsins Exeter City heita báðir St James’ Park. Stuðningsmaðurinn, sem ferðaðist frá London, sló inn ranga staðsetningu á símann sinn.
Guardian segir frá málinu og að einstaklingurinn hafi orðið mjög vandræðalegur þegar hann rétti fram miðann sinn og komst að mistökunum.

„Einn af sjálfboðaliðum okkar kom á skrifstofuna og lét vita af því að þessi maður hefði komið og búist við því að sjá Barcelona. Enskan hans var ekki frábær en hann sagðist hafa ferðast frá London," segir Adam Spencer, starfsmaður Exeter.
Svo vildi til að Exeter átti líka leik í gær og félagið bauð manninum á þann leik í sárabætur. Hann sá því Exeter tapa 0-1 fyrir Lincoln, toppliði C-deildarinnar, en á meðan endaði leikur Newcastle og Barcelona með 1-1 jafntefli.
Athugasemdir