Coventry City er með átta stiga forystu á toppi Championship deildarinnar eftir þægilegan sigur á Preston North End í kvöld.
Coventry vann 3-0 á sama tíma og Middlesbrough tapaði óvænt á heimavelli. Þar skoraði Conor Coady, fyrrum fyrirliði Wolves, eina mark leiksins.
Middlesbrough er áfram í öðru sæti en á í hættu á að missa það til Millwall eða Ipswich næst þegar liðið misstígur sig. Charlton siglir lygnan sjó um miðja deild.
Birmingham freistar þess að blanda sér í umspilsbaráttuna og skoraði Patrick Roberts eina mark leiksins í sigri gegn QPR, á meðan Norwich vann endurkomusigur gegn Sheffield United. Þetta var þriðji sigur Norwich í röð en bæði liðin eru um miðja deild.
West Bromwich Albion er þá í fallsæti eftir jöfnunarmark sem Southampton skoraði í uppbótartíma og eru liðsfélagar Andra Lucas Guðjohnsen í Blackburn í erfiðri stöðu eftir tap gegn Oxford í fallbaráttunni.
Blackburn er aðeins einu stigi frá fallsæti, með 39 stig eftir 37 umferðir.
Coventry 3 - 0 Preston NE
1-0 Tatsuhiro Sakamoto ('17 )
2-0 Brandon Thomas-Asante ('34 )
3-0 Matt Grimes ('50 , víti)
Middlesbrough 0 - 1 Charlton Athletic
0-1 Conor Coady ('59 )
Birmingham 1 - 0 QPR
1-0 Patrick Roberts ('6 )
Norwich 2 - 1 Sheffield Utd
0-1 Jairo Riedewald ('21 )
1-1 Jack Stacey ('68 )
2-1 Amankwah Forson ('84 )
West Brom 1 - 1 Southampton
1-0 Jayson Molumby ('45 )
1-1 Cyle Larin ('91 )
Oxford United 1 - 0 Blackburn
1-0 Jamie Donley ('34 )
Athugasemdir




