Það er pressa á Robin van Persie hjá Feyenoord og eru efasemdir farnar að myndast um stöðu hans.
Van Persie, sem lék meðal annars með Arsenal og Manchester United á ferli sínum, tók við sem stjóri Feyenoord í febrúar í fyrra eftir að hafa stýrt Heerenveen um stutt skeið.
Van Persie, sem lék meðal annars með Arsenal og Manchester United á ferli sínum, tók við sem stjóri Feyenoord í febrúar í fyrra eftir að hafa stýrt Heerenveen um stutt skeið.
Feyenoord er sem stendur í öðru sæti hollensku úrvalsdeildarinnar en eru 19 stigum á eftir toppliði PSV.
Liðið hefur ekki verið að spila frábærlega að undanförnu og samkvæmt hollenskum fjölmiðlum fundaði stjórn Feyenoord um framtíð Van Persie á dögunum.
Það var ákveðið þar að hann myndi halda áfram með liðið, allavega fyrir næstu leiki.
Athugasemdir



