Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
banner
   mið 11. mars 2026 09:30
Elvar Geir Magnússon
Ibrahima Balde á förum frá Þór
Vel fagnað eftir að sætið í Bestu deildinni var tryggt.
Vel fagnað eftir að sætið í Bestu deildinni var tryggt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ibrahima Balde er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á förum frá Þór. Tíðindin koma mjög á óvart þar sem Balde var einn besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra og lykilmaður í því að Þór tryggði sér sæti í Bestu deildinni.

Balde er þrítugur Senegali sem spilaði sem sóknarsinnaður miðjumaður á síðasta tímabili, skoraði átta mörk og lagði samkvæmt Transfermarkt upp fimm á síðasta tímabili. Það skilaði honum í lið ársins hér á Fótbolti.net.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var ágreiningur um hvar Balde ætti að spila á vellinum. Hann hefur spilað sem fremsti maður á undirbúningstímabilinu og var hann ekki hrifinn af því. Sátt náðist ekki um það og því er hann á förum.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa nokkur félög í Lengjudeildinni áhuga á því að fá Balde í sínar raðir.

Balde kom til Íslands frá Spáni fyrir tímabilið 2023 og lék með Vestra fyrstu tvö tímabilin sín á Íslandi. Hann hjálpaði Vestra að komast upp úr Lengjudeildinni 2023 og lék 23 leiki þegar Vestri hélt sér uppi í Bestu 2024.
Athugasemdir
banner
banner