Í kvöld halda 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar áfram. Þau hófust í gær og í kvöld eru svo fjórir leikir. Real Madrid mætir Manchester City á Santiago Bernabeu.
Þetta er fyrri viðureign liðanna en hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið.
Meiðslalisti Real Madrid er langur en á honum eru meðal annars Kylian Mbappe, Jude Bellingham og Rodrygo. Mbappe missir af leiknum í kvöld en verður líklega með í seinni leiknum. Bellingham missir hinsvegar af einvíginu en ekki er búist við honum til baka þar til eftir næsta landsleikjaglugga.
Vangaveltur um möguleg meiðsli Erling Haaland urðu að engu þegar hann ferðaðist með til Madrídar og má búast við því að hann leiði sóknarlínu City í kvöld.

Real Madrid líklegt (4-4-2): Courtois; Alexander-Arnold, Asencio, Rüdiger, Mendy; Valverde, Güler, Tchouaméni, Camavinga; Vinicius, García.
Man City líklegt (4-2-2-2): Donnarumma; Nunes, Dias, Guéhi, Aït-Nouri; Rodri, Silva; Cherki, O’Reilly; Haaland, Semenyo.
Athugasemdir