Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 09:53
Auglýsingar
Skráning í Boladeildina fyrir sumarið - Sjö manna utandeild
Mynd: Boladeildin
Skráning er hafin í Boladeildina fyrir sumarið 2026, um er að ræða sjö manna utandeild sem Leiknir í Breiðholti stendur fyrir. Leikið er á gervigrasi á Leiknisvelli.

Leikið verður í riðlum og síðan taka við 16 liða úrslit. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi þegar fjöldi þátttökuliða liggur fyrir. Einnig mun fara fram bikarkeppni.

Mótið hefst í maí/júní og lýkur í ágúst/september. Almenna reglan er sú að leikið er um virka daga en ef frestanir eiga sér stað þarf stundum að koma þeim leikjum fyrir á varadögum. sem spila í Bestu-deild eða Lengjudeildinni eru ekki löglegir í Boladeildinni.

Skráning fer fram á [email protected]

Þátttökugjald er kr. 105.000. Greiða þarf staðfestingargjald fyrir skráð lið í síðast lagi 3. maí að öðrum kosti verða tekin inn lið af biðlista. Staðfestingargjaldið er kr. 35.000 og fæst ekki endurgreitt ef lið hættir við þátttöku. Fullnaðargreiðslu kr. 70.000 verður svo að inna af hendi í síðasta lagi 17. maí.

Greiða þarf staðfestingargjald kr. 35.000 fyrir 3. maí og fullnaðargreiðslu kr. 70.000 kr. fyrir 17. maí eða greiða þátttökugjaldið í einni greiðslu kr. 105.000.
Greiðist inn á Íþróttafélagið Leikni,
kt. 690476-0299
banki 0537-26-016904
Munið að setja sem skýringu nafnið á liðinu og senda kvittun á [email protected]
Athugasemdir
banner
banner
banner