Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. ágúst 2019 15:20
Benjamín Þórðarson
Byrjunarlið ÍA og Breiðabliks: Viktor Jóns meiddur - Óbreytt hjá Blikum
Viktor er ekki með vegna meiðsla.
Viktor er ekki með vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Damir er á bekknum hjá Breiðablik.
Damir er á bekknum hjá Breiðablik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna kl 16:00 hefst leikur ÍA og Breiðabliks í 16.umferð Pepsi Max-deildar karla á Norðurálsvellinum á Akranesi.

Byrjnarliðin eru klár hjá liðunum. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA gerir fjórar breytingar á sínu liði frá tapleiknum á móti FH. Albert Hafsteinsson, Viktor Jónsson, Lars Marcus Johannsson og Aron Kristófer Lárusson detta allir út. Viktor og Lars eru báðir meiddir. Inn koma í þeirra stað Bjarki Steinn Bjarkason, Steinar Þorsteinsson, Einar Logi Einarsson og Jón Gísli Eyland Gíslason

Ágúst Gylfason þjálfari Breiðabliks stillir hins vegar upp óbreyttu liði frá 4-0 sigrinum á KA, enda ekki mikil ástæða til að breyta sigurliði. Damir sem var í banni í síðasta leik kemur inná bekkinn.

Byrjunarlið ÍA
12. Árni Snær Ólafsson (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
3. Óttar Bjarni Guðmundsson
5. Einar Logi Einarsson
7. Sindri Snær Magnússon
8. Hallur Flosason
10. Tryggvi Hrafn Haraldsson
18. Stefán Teitur Þórðarson
19. Bjarki Steinn Bjarkason
22. Steinar Þorsteinsson
23. Jón Gísli Eyland Gíslason

Byrjunarlið Breiðabliks
1. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
5. Elfar Freyr Helgason
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Gísli Eyjólfsson
8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Höskuldur Gunnlaugsson
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson
26. Alfons Sampsted

Beinar textalýsingar:
16:00 Víkingur - ÍBV
16:00 KA - Stjarnan
16:00 HK - KR
16:00 ÍA - Breiðablik
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner