Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stórliðin hafa áhuga á eldsnöggum varnarmanni Tromsö
Sedi Kinteh þegar handsalaði samning við Tromsö.
Sedi Kinteh þegar handsalaði samning við Tromsö.
Mynd: Tromsö
Manchester United og Chelsea eru að fylgjast með Sedi Kinteh, varnarmanni Tromsö í Noregi.

Þetta kemur fram á Daily Mail en leikmaðurinn heillaði mikið á sínu fyrsta tímabili í Noregi. Hann er fæddur í Gambíu en kom til Tromsö í fyrra á reynslu frá akademíu í Senegal.

Kinteh heillaði svo mikið þegar hann kom til reynslu að Tromsö gaf honum fimm ára samning.

Það er mikill áhugi á Kinteh en njósnarar frá bæði Man Utd og Chelsea hafa fylgst með honum.

Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála hjá Man Utd, er sagður ótrúlega hrifinn af því sem hann hefur séð frá Kinteh. Hraðinn sem hann býr yfir er sérstaklega heillandi. Menn hafa velt því fyrir sér hvort hraði hans gæti verið á pari við hraða Mickey van de Ven, varnarmanns Tottenham.

Það er talið að Tromsö muni biðja um 5 milljónir evra fyrir þennan spennandi varnarmann.

United er líka sagt hafa áhuga Caleb Yirenkyi, miðjumanni Nordsjælland í Danmörku. Yirenkyi er frá Gana upprunalega en hann hefur heillað mikið í danska boltanum að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner