Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 19:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sambandsdeildin: Logi byrjaði í tapi
Logi Tómasson í baráttu
Logi Tómasson í baráttu
Mynd: EPA
Logi Tómasson var í byrjunarliði Samsunspor sem tapaði í Tyrklandi gegn spænska liðinu Rayo Vallecano í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.

Alemao kom Rayo yfir eftir stundafjórðung en Marius jafnaði metin stuttu síðar. Alvaro Garcia sá til þess að Rayo var með forystuna í hálfleik.

Það var síðan Alemao sem innsiglaði sigur spænska liðsins með marki undir lok leiksins. Logi var meðal bestu leikmönnum Samsunspor í leiknum en hann fékk m.a. bestu einkunnina hjá Soccerway af leikmönnum liðsins.

Gísli Gottskálk Þórðarson var ónotaður varamaður þegar Lech Poznan tapaði gegn Shaktar Donetsk á heimavellii.

Írski landsliðsmaðurinn Troy Parrott var hetja AZ Alkmaar sem er með eins marks forystu í einvíginu gegn Sparta Prag eftir sigur á heimavelli í kvöld.

Þá er Strasbourg með forystuna gegn Rijeka eftir sigur á útivelli.

Lech 1 - 3 Shakhtar D
0-1 Marlon Gomes ('36 )
0-2 Newerton ('48 )
1-2 Mikael Ishak ('70 )
1-3 Isaque ('85 )

AZ 2 - 1 Sparta Praha
1-0 Troy Parrott ('29 )
1-1 Matyas Vojta ('50 )
2-1 Troy Parrott ('87 )

Samsunspor 1 - 3 Rayo Vallecano
0-1 Alemao ('15 )
1-1 Marius Mouandilmadji ('21 )
1-2 Alvaro Garcia ('40 )
1-3 Alemao ('78 )

Rijeka 1 - 2 Strasbourg
0-1 Joaquin Panichelli ('2 )
0-2 Martial Godo ('72 )
1-2 Ante Majstorovic ('76 )
Athugasemdir
banner