Kolbeinn Sigþórsson fann skotskóna á nýjan leik í kvöld og það á mikilvægasta augnabliki undankeppni EM 2016 til þessa.
Framherjinn öflugi skoraði sigurmark Íslands í frábærum 2-1 sigri gegn Tékklandi í toppslag A-riðils, en ljóst var að sigurvegari þessarar rimmu yrði kominn í mjög sterka stöðu í baráttunni um miða til Frakklands.
Ísland fór með sigrinum upp á topp riðilsins, þar sem liðið er með 15 stig eftir sex leiki.

„Þetta var náttúrulega veislusigur að ná að sigla þessu inn þarna í endann, þetta var frábær frammistaða hjá okkur. Allt liðið barðist vel, þetta var bara frábær leikur," sagði Kolbeinn við Fótbolta.net.
„Við elfdumst við að fá markið á okkur og við spiluðum miklu betur eftir það. Við komum svo til baka og sýnum góðan karakter."
Kolbeinn skoraði laglegt mark eftir að hafa farið framhjá Petr Cech.
„Það var eitthvað klafs þarna, ég held að Jón Daði hafi aðeins náð að koma við boltann og varnarmaðurinn vissi ekki alveg hvað hann átti að gera. Ég verð að sjá þetta aftur, en bara fínt mark og gott fyrir mig að skora, það var langt síðan ég náði að skora með landsliðinu. Maður vill vera mikilvægur hluti af þessu liði."
„Maður verður bara að halda kúlinu þegar maður kemst í færi og það gekk upp."