Á sunnudag klukkan 16:00 tekur ÍBV á móti Breiðabliki í elleftu umferð Bestu deildarinnar. Spilað verður á Þórsvelli þar sem nýr gervigraslagður Hásteinsvöllur er ekki tilbúinn. Gúmmíkurl til að fylla í völlinn er ekki komið til Vestmannaeyja.
Fótbolti.net ræddi við þjálfara Íslandsmeistaranna, Halldór Árnason, um leikinn.
Fótbolti.net ræddi við þjálfara Íslandsmeistaranna, Halldór Árnason, um leikinn.
„Við vorum ekki nægilega öflugir sóknarlega í síðasta grasleik, gegn FH, við þurfum að vera beinskeyttari; koma boltanum fyrr nálægt vítateig andstæðinganna," segir Dóri.
„Baráttan verður að vera til staðar frá fyrstu mínútu, það eru fleiri návígi og fleiri seinni boltar í grasleikjum og við þurfum að vera klárir."
Tobias Thomsen var frábær gegn Víkingi í síðasta leik, hvernig viltu nýta hann gegn ÍBV?
„Ég vil hafa hann sem næst vítateignum, hann er hættulegastur þar. Við erum það lið sem hefur átt flestar snertingar inn á vítateig andstæðinganna í sumar, við þurfum að vera beinskeyttari þar og koma boltanum oftar á okkar bestu menn, koma honum á Tobias."
Breiðablik endurheimtir Arnór Gauta Jónsson úr leikbanni og Óli Valur Ómarsson er mættur aftur eftir meiðsli. Aron Bjarnason hefur spilað í gegnum meiðsli í upphafi móts og er staðan á honum metin dag frá degi. Ásgeir Helgi Orrason er ekki klár eftir að hafa tognað fyrir landsleikjahlé, Davíð Ingvarsson verður lengi frá og Dóri vonar að Kristinn Jónsson geti komið inn á næstu vikum. Þá er óvíst hvenær Þorleifur Úlfarsson getur komið inn í hópinn en hann hefur glímt við erfið meiðsli síðustu misseri.
Athugasemdir