Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
banner
   fös 13. júní 2025 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mbeumo nú opnari fyrir skiptum til Tottenham
Bryan Mbeumo.
Bryan Mbeumo.
Mynd: EPA
Thomas Frank er hættur með Brentford og tekinn við Tottenham, en þetta gæti opnar dyr fyrir Spurs að mögulegum kaupum á Bryan Mbeumo.

Það var í fréttunum í síðustu viku að Mbeumo hefði valið að ganga í raðir Manchester United, og hefur United verið í viðræðum við Brentford um kaup á honum.

Núna er Mbeumo sagður áhugasamari en hann var um möguleg skipti til Tottenham þar sem Frank er tekinn við liðinu.

Mbeumo verður 26 ára í ágúst. Hann átti frábært tímabil í vetur, skoraði 20 mörk og lagði upp átta í 38 úrvalsdeildarleikjum. Hann á ár eftir af samningi sínum við Brentford en félagið getur framlengt þann samning um ár til viðótar.
Athugasemdir
banner
banner