Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fös 13. júní 2025 11:37
Elvar Geir Magnússon
Albert horfði á systur sínar þrjár spila saman með KR
Kvenaboltinn
Guðmundsdæturnar þrjár ásamt Alberti.
Guðmundsdæturnar þrjár ásamt Alberti.
Mynd: Mummi Lú
Allar þrjár dætur Guðmundar Benediktssonar og Kristbjargar Ingadóttur, fyrrum leikmanna KR, spiluðu saman í leik með KR gegn Gróttu í Lengjudeild kvenna í gær.

Þar á meðal Karen Guðmundsdóttir (2003) sem kom inn á í sínum fyrsta leik fyrir KR en hún var að spila sinn fyrsta fótboltaleik í langan tíma vegna erfiðra meiðsla eftir fótbrot árið 2019.

„Það er því risastór persónulegur sigur fyrir Karen að vera mætt aftur á völlinn sem og KR að fá hana í sínar raðir þar sem hennar knattspyrnuferill hefur hingað til verið allur í Val," segir KR á Facebook.

Lestu um leikinn: KR 2 -  4 Grótta

Systur Karenar eru þær Katla (2007) og Kara (2010) Guðmundsdætur og eftir að Karen kom inn af bekknum voru þær allar saman á vellinum í leik gegn Gróttu.

„Þetta var vonandi fyrsti leikur af mörgum hjá þeim systrum saman! Nú hefur öll fjölskyldan spilað meistaraflokksleik fyrir félagið en bróðir stelpnanna er landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson."

Albert er í stuttu sumarfríi og var meðal áhorfenda á leiknum í gær en það var Grótta sem fagnaði sigri, 2-4.


Athugasemdir
banner