Thomas Frank var í gær staðfestur sem nýr stjóri Tottenham. Daninn hefur gert frábæra hluti hjá Brentford og fer nú til stærra félags.
Frank náði að gera Brentford að stöðugu úrvalsdeildarfélagi með því að spila skemmtilegan fótbolta af mikilli ákefð og átti sterkt samband við stuðningsmenn.
Hann hefur nú skrifað tilfinningaríkt kveðjubréf sem lesa má í íslenskri þýðingu hér að neðan:
Frank náði að gera Brentford að stöðugu úrvalsdeildarfélagi með því að spila skemmtilegan fótbolta af mikilli ákefð og átti sterkt samband við stuðningsmenn.
Hann hefur nú skrifað tilfinningaríkt kveðjubréf sem lesa má í íslenskri þýðingu hér að neðan:
Til allra sem tengjast fótboltafélaginu Brentford.
Sá tími er kominn að ég færi mig um set. En þó ég fari, veit ég að ég hef skilið stóran hluta af hjarta mínu eftir hjá Brentford; ekki bara hjá félaginu heldur einnig hjá samfélaginu og auðvitað hjá ótrúlegum og tryggum stuðningsmönnum.
Ég vil koma á framfæri djúpu þakklæti til félagsins fyrir að gefa mér tækifæri til að elta drauma mína og til allra sem komu að því að gera ferðalagið svo eftirminnilegt.
Fyrir fjölskyldu mína og mig hefur það verið forréttindi að fá að vera hluti af svona sérstöku samfélagi - það er reynsla og ævintýri sem við munum varðveita með okkur alla ævi. Takk fyrir.
Það sem við höfum áorkað höfum við gert saman og árangur okkar byggist á einingu, anda, hugrekki og metnaði hjá öllu félaginu og stuðningsmönnum.
Allir hafa lagt sitt af mörkum, og hvert framlag hefur verið ómetanlegt. Ég er ekki bara að yfirgefa fótboltafélag, ég er að kveðja vini sem hafa sýnt mér stuðning í gegnum góða og slæma tíma.
Ég vil sérstaklega þakka Matthew Benham [eiganda Brentford]. Traust hans og vinátta hefur haft svo mikla þýðingu og sú staðreynd að hann gaf mér tækifæri í enska boltanum þýðir að ég verð honum ævinlega þakklátur. Þakka þér fyrir, Matt.
Þó að þetta sé kveðjustund, þá vona ég að samböndin sem ég hef byggt upp við alla verði varanleg og að sjálfsögðu munum við hittast aftur í dásamlegum heimi fótboltans.
Þakka ykkur öllum,
Thomas
A message from Thomas ? pic.twitter.com/H8hQ1zkXKw
— Brentford FC (@BrentfordFC) June 13, 2025
Athugasemdir