Arsenal býður fimm ára samning - Liverpool reyndi skiptidíl - Bernardo Silva til Benfica - Olise á blaði Liverpool
   fös 12. september 2025 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Nýir markmenn í báðum mörkunum á Etihad?
Donnarumma gerði fimm ára samning við City, með möguleika á auka ári.
Donnarumma gerði fimm ára samning við City, með möguleika á auka ári.
Mynd: EPA
Lammens gerði fimm ára samning við United.
Lammens gerði fimm ára samning við United.
Mynd: Manchester United
Manchester City tekur á móti Manchester United í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Liðin mætast á sunnudag og er mikið undir þar sem bæði lið hafa farið hikstandi af stað á nýju úrvalsdeildartímabili. Man City er óvænt með 3 stig eftir 3 fyrstu umferðirnar á meðan Man Utd er með 4 stig.

Félögin voru bæði dugleg á leikmannamarkaðinum í sumar þar sem þau kræktu sér í mikið af nýjum leikmönnum. City keypti leikmenn fyrir yfir 170 milljónir punda þar sem Tijjani Reijnders, Rayan Aït-Nouri og Rayan Cherki voru dýrastir.

Félagið keypti tvo nýja markverði, þá James Trafford og Gianluigi Donnarumma. Þeir munu berjast um markmannsstöðuna eftir að Ederson var seldur til Fenerbahce í Tyrklandi.

Trafford hefur varið mark City í fyrstu leikjunum á nýju tímabili en mögulegt er að Donnarumma, sem var keyptur á gluggadegi, taki byrjunarliðsstöðu hans strax um helgina.

Donnarumma var keyptur um mánaðamótin og fór beint í landsliðsverkefni með Ítalíu. Hann kom til baka seint á miðvikudaginn og er því aðeins á sínum öðrum degi með liðinu í dag.

United keypti leikmenn fyrir rúmar 220 milljónir í sumar og gekk frá kaupum á markverðinum Senne Lammens á gluggadegi, alveg eins og nágrannar sínir gerðu með Donnarumma.

André Onana fór til Tyrklands, alveg eins og Ederson, og kom Lammens inn í staðinn.

Mögulegt er að þessi ungi Belgi fari beint í byrjunarliðið hjá Rauðu djöflunum þar sem Altay Bayindir hefur ekki verið sannfærandi á milli stanganna á upphafi tímabils.

Benjamin Sesko, Bryan Mbeumo og Matheus Cunha voru dýrustu kaup United í sumar.
Athugasemdir
banner