Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fös 13. febrúar 2026 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England um helgina - Enski bikarinn í fullum gangi
Mynd: Brentford
32-liða úrslitin í enska bikarnum fara fram um helgina. Umferðin byrjar með tveimur leikjum í kvöld. Chelsea heimsækir Championship liðið Hull og þá er Championship slagur milli Wrexham og Ipswich.

Man City fær Salford City í heimsókn í grannaslag á morgun. Salford spilar í D-deildinni. Þá eru tveir úrvalsdeildarslagir seinni partinn á morgun. Aston Villa fær Newcastle í heimsókn og Liverpool fær Brighton í heimsókn.

Wolves heimsækir Grimsby á sunnudaginn og Leeds heimsækir Birmingham. Sunderland og Fulham spila einnig útieliki og þá fær Arsenal Wigan í heimsókn.

Umferðinni lýkur á mánudaginn þar sem Brentford fær Macclesfield í heimsókn. Macclesfield spilar í utandeildinni en liðið sló Crystal Palace óvænt út í síðustu umferð. Hákon Rafn Valdimarsson fær vonandi tækifæri í markinu hjá Brentford í leiknum.

föstudagur 13. febrúar

ENGLAND: FA Cup
19:45 Hull City - Chelsea
19:45 Wrexham - Ipswich Town

laugardagur 14. febrúar

ENGLAND: FA Cup
12:15 Burton - West Ham
15:00 Burnley - Mansfield Town
15:00 Man City - Salford City
15:00 Norwich - West Brom
15:00 Port Vale - Bristol City
15:00 Southampton - Leicester
17:45 Aston Villa - Newcastle
20:00 Liverpool - Brighton

sunnudagur 15. febrúar

ENGLAND: FA Cup
12:00 Birmingham - Leeds
13:30 Grimsby - Wolves
14:00 Oxford United - Sunderland
14:00 Stoke City - Fulham
16:30 Arsenal - Wigan

mánudagur 16. febrúar

ENGLAND: FA Cup
19:30 Macclesfield - Brentford
Athugasemdir
banner
banner