Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 20:59
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Ungir Blikar steinlágu í Laugardal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. 4 - 0 Breiðablik
1-0 Tryggvi Snær Geirsson ('20)
2-0 Aron Snær Ingason ('32)
3-0 Aron Snær Ingason ('58)
4-0 Hlynur Þórhallsson ('87)

Þróttur tók á móti ungu liði Breiðabliks í Lengjubikarnum í kvöld og skóp þægilegan fjögurra marka sigur.

Tryggvi Snær Geirsson gerði fyrsta mark leiksins og tvöfaldaði Aron Snær Ingason forystuna svo staðan var 2-0 í leikhlé.

Aron Snær innsiglaði sigur Þróttara í síðari hálfleik áður en Hlynur Þórhallsson setti fjórða og síðasta mark leiksins á lokakaflanum. Lokatölur 4-0.

Átta byrjunarliðsmenn í liði Breiðabliks eru fæddir á árunum 2007 til 2009 en auk þeirra voru Höskuldur Gunnlaugsson, Viktor Karl Einarsson og Davíð Ingvarsson í byrjunarliðinu.

Þróttur fer á topp riðils 4 í Lengjubikarnum með þessum sigri. Liðið er með sex stig eftir þrjár umferðir á meðan ungir Blikar eru án stiga eftir tvo leiki.

Þróttarar eiga eftir að spila spennandi leiki við ÍBV og Fylki í síðustu umferðum riðlakeppninnar.
Athugasemdir
banner
banner