Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 16:00
Kári Snorrason
Upamecano ekki til Liverpool - Framlengir í Bayern
Upamecano á æfingu með franska landsliðinu á Laugardalsvelli.
Upamecano á æfingu með franska landsliðinu á Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Franski miðvörðurinn Dayot Upamecano hefur framlengt samning sinn við þýska stórveldið Bayern Munchen til ársins 2030.

Fyrr í mánuðinum var greint frá áhuga Liverpool á leikmanninum, en samningur hans við Bayern rennur út í sumar. Hann hafði sjálfur tafið viðræður við Bayern á meðan hann kannaði stöðuna á markaðnum.

Upamecano er 27 ára gamall og verið á mála hjá Bayern frá 2021, en hann kom til félagsins frá RB Leipzig. Hann á 35 A-landsleiki og 2 mörk fyrir Frakka.

Liverpool hefur verið í miðvarðarleit, sérstaklega þar sem Ibrahima konate, fyrrum samherji Upamecano hjá Leipzig, verður samningslaus næsta sumar.


Athugasemdir
banner
banner