Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 13. mars 2025 18:58
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðin í Evrópu: 18 ára í vörn Man Utd - Orri Steinn á bekknum
Ayden Heaven er í vörn United
Ayden Heaven er í vörn United
Mynd: Man Utd
Albert Guðmundsson byrjar hjá Fiorentina gegn Panathinaikos
Albert Guðmundsson byrjar hjá Fiorentina gegn Panathinaikos
Mynd: EPA
Í kvöld klárast 16-liða úrslitin í Evrópudeildinni og Sambandsdeild Evrópu en þrjú ensk lið verða í eldlínunni í leikjunum sem hefjast klukkan 20:00.

Manchester United mætir Real Sociedad á Old Trafford í Evrópudeildinni en hinn 18 ára gamli Ayden Heaven, sem kom frá Arsenal fyrr á árinu, er í vörninni ásamt Noussair Mazraoui og Matthijs De Ligt.

Rasmus Höjlund er fremstur og þá er Casemiro á miðsvæðinu með Bruno Fernandes.

Nýr fyrirliði íslenska landsliðsins, Orri Steinn Óskarsson, er á bekknum hjá Real Sociedad.

Staðan í einvíginu er 1-1.

Man Utd: Onana; Heaven, Mazraoui, De Ligt; Dorgu, Casemiro, Garnacho, Dalot; Zirkzee, Bruno Fernandes; Hojlund

Real Sociedad: emiro; Elustondo, Aguerd, Zubeldia, Aihen Muñoz; Marín, Zubimendi, Brais Méndez; Kubo, Oyarzabal, Becker.



Tottenham fær þá AZ Alkmaar í heimsókn og fer inn í það einvígi 1-0 undir. Kevin Danso og Rodrigo Bentancur eru ekki með vegna meiðsla og þá koma Brennan Johnson og Yves Bissouma á bekkinn en þeir James Maddison, Lucas Bergvall, Heung-Min Son og Micky van de Ven.

Tottenham: Vicario; Pedro Porro, Van de Ven, Romero, Spence; Bergvall, Sarr, Maddison; Odobert, Solanke, Son

AZ: Owusu-Oduro; Maikuma, Goes, Penetra, Wolfe; Clasie, Buurmeester, Koopmeiners; Poku, Parrott, Sadiq.

Chelsea og FCK mætast í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar á Stamford Bridge.

Margir lykilmenn eru á bekknum en þar má nefna Reece James, Cole Palmer, Levi Colwill og Christopher Nkunku.

Kiernan Dewsbury-Hall er á miðsvæðinu og þá er Filip Jörgensen í markinu. Rúnar Alex Rúnarsson er á bekknum hjá FCK. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Chelsea á Parken.

Chelsea: Jorgensen; Chalobah, Tosin, Badiashile, Acheampong; Enzo Fernández, Caicedo; George, Sancho, Dewsbury-Hall; Pedro Neto

FCK: Ramaj; Diks, Hatzidiakos, Pereira, Meling; Clem, Froholdt; Claesson, Elyounoussi, Achouri; Huescas.

Albert Guðmundsson og Sverrir Ingi Ingason mætast í leik Fiorentina og Panathinaikos í Flórens. Albert byrjar hjá Fiorentina og Sverrir hjá gríska liðinu, en Panathinaikos leiðir einvígið, 3-2.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner