Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 08:55
Elvar Geir Magnússon
Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd
Powerade
Erling Haaland, sóknarmaður Manchester City.
Erling Haaland, sóknarmaður Manchester City.
Mynd: EPA
Njósnarar Man Utd fylgjast með Mateus Fernandes.
Njósnarar Man Utd fylgjast með Mateus Fernandes.
Mynd: EPA
Tekur Klopp við Þýskalandi?
Tekur Klopp við Þýskalandi?
Mynd: EPA
Góðan og gleðilegan föstudag. Það er spennandi boltahelgi framundan. Við hefjum daginn á því að fá okkur Powerade og skoða það helsta úr slúðurheimum.

Barcelona hefur rætt við Manchester City til að tryggja að félagið fái sæti fyrst við borðið ef norski sóknarmaðurinn Erling Haaland (25) verður fáanlegur til sölu. (Sport)

Rafaela Pimenta, umboðsmaður Haaland, talaði niður Barcelona sögurnar í spænsku sjónvarpsviðtali. (Times)

Sandro Tonali (25), miðjumaður Newcastle, er á blaði Manchester United yfir möguleg miðjumannaskotmörk. (Sun)

Njósnarar Manchester United hafa fylgst vel með portúgalska miðjumanninum Mateus Fernandes (21) sem mun reyna að komast frá Hömrunum ef félagið fellur. (TalkSport)

Jurgen Klopp, fyrrum stjóri Liverpool, gæti hætt sem yfirmaður fótboltamála hjá alþjóðadeild Red Bull og tekið við sem landsliðsþjálfari Þýskalands eftir HM. (Bild)

Newcastle er á markaðnum í leit að nýjum sóknarmanni í sumar þrátt fyrir að hafa eytt 124 milljónum punda í leikmenn í þessari stöðu á síðasta ári. Þá er kantmaðurinn Said El Mala (19) hjá Köln einnig á radarnum hjá Newcastle. (Mail)

Áhugi Newcastle á senegalska miðjumanninum Lamine Camara (22) hjá Mónakó hefur aukist. (The I)

Kieran Trippier (35), varnarmaður Newcastle, gæti enn fengið tilboð um nýjan samning á St James' Park en Arsenal heldur áfram að fylgjast með öðrum bakverði félagsins, Tino Livramento (23). (Football Insider)

Juventus er meðal félaga sem hafa áhuga á að fá pólska sóknarmanninn Robert Lewandowski (37) en samningur hans við Barcelona rennur út í sumar. (Tuttosport)

Innanbúðarmenn hjá Liverpool segja ekkert til í þeim orðrómi að þýski miðjumaðurinn Florian Wirtz (22) gæti farið til Real Madrid eftir aðeins eitt tímabil á Anfield. (Teamtalk)

Sean Dyche, fyrrum stjóri Everton og Burnley, er sagður koma til greina sem bráðabirgðastjóri út tímabilið ef Igor Tudor verður rekinn frá Tottenham. (Independent)

Það yrði erfitt að sannfæra Dyche um að taka starfið því hann vill lengri samning en út tímabilið. Robbie Keane og Ryan Mason, fyrrum leikmenn Tottenham, gætu verið mögulegir kostir (Talksport)

Inter er tilbúið að láta varnarmanninn Alessandro Bastoni (26) og miðjumanninn Nicolo Barella (29) fara í sumar ef ásættanleg tilboð berast. (Gazzetta dello Sport)

Atletico Madrid er tilbúið að selja argentínska framherjann Julian Alvarez (26) til félags í ensku úrvalsdeildinni ef 85 milljóna punda tilboð berst. Félagið mun ekki hleypa honum til Barcelona. (Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner