Frimpong orðaður við Liverpool - City reynir við Reijnders - Man Utd ætlar ekki að losa sig við Amorim
   þri 13. maí 2025 11:11
Elvar Geir Magnússon
Slot djammaði á Ibiza
Wayne Lineker með Arne Slot á Ibiza.
Wayne Lineker með Arne Slot á Ibiza.
Mynd: Instagram/waynelineker
Arne Slot, stjóri Liverpool, er stemningsmaður og hann var mættur til Ibiza að skemmta sér nokkrum klukkutímum eftir jafnteflið gegn Arsenal um síðustu helgi.

Næturlífskóngurinn Wayne Lineker, sem er bróðir Gary Lineker, skemmti sér vel með Slot. Wayne á O Beach Ibiza skemmtistaðinn en fræga fólkið er duglegt að venja komur sínar þangað.

'We Are the Champions' lagið var spilað enda stýrði Slot liði Liverpool til enska meistaratitilsins á sínu fyrsta tímabili með stjórnartaumana.

Eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan þá skemmti Hollendingurinn sér gríðarlega vel í partíinu á Ibiza og fagnaði með viðstöddum.


Athugasemdir
banner
banner