Chelsea skoðar Donnarumma - Newcastle endurvekur áhuga sinn á Ekitike - Douglas Luiz til West Ham?
   sun 13. júlí 2025 14:35
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Leikmenn Liverpool minnast Jota með mínútuþögn
Mynd: EPA
Nú er í gangi æfingaleikur milli Preston og Liverpool á heimavelli fyrrnefnda liðsins. Fyrir leik var Diogo Jota minnst en hann lést í hörmulegu bílslysi nýlega.

Hans fyrrum samherjar í Liverpool-liðinu stóðu mínútuþögn fyrir leikinn ásamt leikmönnum Preston en meðal manna í byrjunarliði Preston er íslenski landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson.

Það eru miklar tilfinningar í kringum þennan æfingaleik, stuðningsmenn Liverpool eru margir hverjir merktir Jota og nafn hans var sungið um völlinn á 20. mínútu en hann var númer 20.

Leikurinn hófst klukkan 14 en Conor Bradley kom Liverpool yfir á 33. mínútu og er það eina markið sem komið er þegar þessi frétt er skrifuð.





Athugasemdir
banner