Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í spænsku deildinni og tapaði Villarreal óvænt á útivelli.
Villarreal heimsótti Getafe og lenti tveimur mörkum undir áður en Georges Mikautadze minnkaði muninn, en lokatölur urðu 2-1 í lokuðum leik.
Villarreal er aðeins búið að sigra einn leik af síðustu sjö í öllum keppnum en situr þó í fjórða sæti í La Liga, með 45 stig eftir 23 umferðir. Getafe er um miðja deild með 29 stig.
Sevilla tók þá á móti Alavés og missti Juanlu Sánchez af velli með rautt spjald snemma leiks. Djibril Sow tók forystuna fyrir tíu heimamenn en þeim tókst ekki að halda út, svo lokatölur urðu 1-1.
Sevilla og Alavés eru bæði með 26 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Að lokum skildu Espanyol og Celta Vigo jöfn í evrópubaráttunni. Liðin skiptust á að taka forystuna og tókst gestunum frá Vigo að gera jöfnunarmark í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 2-2.
Espanyol situr í sambandsdeildarsætinu með 35 stig, einu stigi meira heldur en Celta.
Getafe 2 - 1 Villarreal
1-0 Mauro Arambarri ('41 , víti)
2-0 Martin Satriano ('53 )
2-1 Georges Mikautadze ('76 )
Sevilla 1 - 1 Alaves
1-0 Djibril Sow ('42 )
1-1 Toni Martinez ('60 )
Rautt spjald: Juanlu Sanchez, Sevilla ('16)
Espanyol 2 - 2 Celta Vigo
0-1 Ferran Jutgla ('38 )
1-1 Kike Garcia ('66 )
2-1 Tyrhys Dolan ('86 )
2-2 Borja Iglesias ('93 )
Athugasemdir




