Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 10:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stórlið vilja fá framherja Brentford - Man Utd á eftir ungum leikmanni Man City
Powerade
Mynd: Brentford
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Igor Thiago, Dayot Upamecano, Andre Onana, Endrick og fleiri koma við sögu í slúðurpakka dagsins.

Man City, Chelsea og Bayern hafa enn áhuga á Igor Thiago, 24, framherja Brentford þrátt fyrir að hann hafi skrifað undir nýjan samning við félagið. (Teamtalk)

Dayot Upamecano, 27, hefur gert út um vonir Liverpool og Real Madrid um að kaupa sig í sumar eftir að hann skrifaði undir nýjan samning við Bayern Munchen. (Sports Illustrated)

Arsenal, Chelsea og Tottenham hafa fengið að vita að Brasilíumaðurinn Endrick er ekki til sölu næsta sumar. Real Madrid segir að þessi 19 ára gamli sóknarmaður muni snúa aftur úr láni frá Lyon og vera hluti af liðinu á næsta tímabili. (Teamtalk)

Man Utd ætlar að selja markvörðinn Andre Onana, 29, í sumar. Kamerúninn er á láni hjá Trabzonspor eftir að hafa misst sætið sitt í byrjunarliði Man Utd. (Sun)

Inter Milan ætlar að nýta ákvæði í samningi miðjumannsins Aleksandar Stankovic, 20, sem gerir félaginu kleift að næla í hann aftur frá Club Brugge. Félagið er í samkeppni við Man Utd, Arsenal, Chelsea og Tottenham. Inter getur keypt hann á 23 milljónir evra. (Fabrizio Romano)

Real Madrid mun virkja endurkaupsákvæði sitt til að fá argentínska miðjumanninn Nico Paz, 21, frá Como í sumar. (Fichajes - á spænsku)

Tottenham hefur skilið dyrnar eftir opnar fyrir Mauricio Pochettino, 53, landsliðsþjálfara Bandaríkjanna, að snúa aftur í sumar. Hann hafði áður stýrt liðinu í úrslit Meistaradeildarinnar. (Telegraph)

Man City undirbýr um 50 milljón evra tilboð í brasilíska bakvörðinn Wesley Franca, 22, leikmann Roma í sumar. (Fichajes)

Newcastle, Tottenham og Aston Villa hafa blandað sér í baráttuna við Arsenal, Chelsea, Liverpool, Man City og Man Utd um franska sóknarmanninn Eli Junior Kroupi, 19, leikmann Bournemouth. (Teamtalk)

Man Utd hefur verið í viðræðum við granna sína í Man City um hinn 16 ára gamla varnarmann Kasan Brown. (Football Insider)

Barcelona vill lækka 26 milljón punda verðmiða, sem félögin komust áður að samkomulagi um Marcus Rashford, 28, sem er á láni frá Man Utd en enska félagið stendur fast á sínu. (Express)

Goncalo Inacio, 24, varnarmaður Sporting, er efstur á óskalista Barcelona til að styrkja varnarlínuna en spænska félagið þarf að borga 70 milljónir evra fyrir hann. (Fichajes)
Athugasemdir
banner
banner
banner