Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 17:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sverrir Páll æfir með Þrótti - Áhugi úr Bestu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Páll Hjaltested hefur verið að æfa með Þrótti Reykjavík. Þetta kom fram í Útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa félög í Bestu deildinni einnig áhuga. Fram hefur verið orðað við hann í talsverðan tíma og slúðrað er um að FH hafi einnig áhuga á honum. Búist er við því að Sverrir taki fljótlega ákvörðun um sína framtíð.

Fram er orðað við annan framherja, Atla Þór Jónasson hjá Víkingi. FH hefur ekki fengið inn nýjan framherja frá því að Sigurður Bjartur Hallsson var seldur til Spánar.

Sverrir er án félags eftir að hafa yfirgefið ÍBV að síðasta tímabili loknu. Hann skoraði sex mörk og lagði upp eitt í 14 byrjunarliðsleikjum í Bestu deildinni í fyrra.

Hann er 25 ára og hefur spilað með Val, Kórdrengjum, Völsungi og ÍBV hér á landi en er uppalinn hjá Víkingi. Hann var á mála hjá Tromsö í Noregi á árunum 2016-18.
Athugasemdir
banner