Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Bayern fer til Bremen
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þýskalandsmeistarar FC Bayern heimsækja fallbaráttulið Werder Bremen í efstu deild þýska boltans í dag.

Bayern getur endurheimt sex stiga forystu á toppi deildarinnar með sigri, en Borussia Dortmund er að setja pressu á stórveldið með góðu gengi undanfarna mánuði. Dortmund sendi skýr skilaboð með 4-0 sigri gegn Mainz í gær eftir að Bayern rúllaði yfir Hoffenheim um síðustu helgi.

Á sama tíma og meistararnir heimsækja Bremen eru fleiri áhugaverðir slagir sem fara fram. Hoffenheim spilar við Freiburg í evrópuslag á meðan Bayer Leverkusen þarf sigur gegn fallbaráttuliði St. Pauli.

Eintracht Frankfurt og Borussia Mönchengladbach eigast einnig við áður en Stuttgart spilar við Köln.

Stuttgart er í harðri baráttu um meistaradeildarsæti á meðan Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í liði Köln eru fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 23 stig eftir 21 umferð.

Leikir dagsins
14:30 Hoffenheim - Freiburg
14:30 Leverkusen - St. Pauli
14:30 Hamburger - Union Berlin
14:30 Werder Bremen - FC Bayern
14:30 Frankfurt - Mönchengladbach
17:30 Stuttgart - Köln
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 26 21 4 1 93 25 +68 67
2 Dortmund 26 17 7 2 55 26 +29 58
3 Hoffenheim 26 15 5 6 54 34 +20 50
4 Stuttgart 25 14 5 6 50 34 +16 47
5 RB Leipzig 25 14 5 6 48 34 +14 47
6 Leverkusen 26 13 6 7 49 33 +16 45
7 Frankfurt 26 10 8 8 49 49 0 38
8 Freiburg 25 9 7 9 37 42 -5 34
9 Augsburg 26 9 4 13 31 45 -14 31
10 Hamburger 26 7 9 10 29 37 -8 30
11 Union Berlin 25 7 7 11 30 42 -12 28
12 Gladbach 26 7 7 12 30 43 -13 28
13 Köln 26 6 7 13 35 44 -9 25
14 Werder 25 6 7 12 29 45 -16 25
15 Mainz 25 5 9 11 29 41 -12 24
16 St. Pauli 26 6 6 14 23 42 -19 24
17 Wolfsburg 26 5 6 15 35 56 -21 21
18 Heidenheim 26 3 5 18 24 58 -34 14
Athugasemdir
banner
banner