Spænska fótboltagoðsögnin David Villa hefur ákveðið að snúa aftur til Atlético Madrid eftir 12 ára fjarveru.
Villa hefur verið ráðinn sem stjórnandi hjá félaginu sem hann lék fyrir tímabilið 2013-14, áður en hann flutti til Bandaríkjanna og lauk atvinnumannaferlinum í MLS deildinni.
Villa er langmarkahæsti leikmaður í sögu spænska landsliðsins með 59 mörk í 98 leikjum, 15 mörkum meira heldur en Raúl González sem er sá næstmarkahæsti.
„Ég er mjög ánægður að snúa aftur í nýju hlutverki en með sama metnað og drifkraft og ég hafði áður til að hjálpa Atlético Madrid að verða betra og betra með hverju árinu," sagði Villa.
„Félagið hefur vaxið mikið síðan ég var þar. Ég vonast til að geta hjálpað við að lyfta því á enn hærri stall. Ég er mjög stoltur og þakklátur fyrir að hafa fengið þetta starf."
Athugasemdir


