Ítalinn Fabrizio Romano hefur skapað sér ótrúlegan fylgjendahóp á samfélagsmiðlum á síðustu árum. Fylgjendur hans hafa verið fyrstir að fá allar félagaskiptafréttirnar og því er hann með 27 milljónir fylgjenda á X til dæmis og enn fleiri á öðrum miðlum.
Upp á síðkastið hins vegar, þá hefur hann verið harðlega gagnrýndur og þá kannski sérstaklega af fjölmiðlamönnum.
Sádi-Arabía, það umdeilda land, ákvað nefnilega að fá Romano með sér í lið. Hann birti myndband af sér á samfélagsmiðlum þar sem hann fór fögrum orðum um nýtt verkefni King Salman.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa stundað íþróttahvítþvott grimmt síðustu árin. Með hvítþvotti er, í þessu tilfelli, átt við tilraun sádí-arabísku ríkisstjórnarinnar til að bæta orðspor sitt á heimsvísu í gegnum íþróttir. Sádí-arabíska þjóðin er talin standa mjög aftarlega í mannréttindarmálum.
Romano er vinsælasti fótboltafréttamaður í heimi en hann hefur stundað svona hvítþvott. Það gerði hann fyrir Mason Greenwood árið 2024 þegar Greenwood var að reyna að bæta orðspor sitt í kjölfar ásakana um ofbeldi.
Ítalski fjölmiðillinn il Fatto Quotidiano spyr einfaldlega að því í dag hvort Romano sé fréttamaður eða áhrifavaldur þar sem hann er mikið að auglýsa alls konar á sínum miðlum.
„Það er eðlilegt að Romano, eins og aðrir mjög vinsælir blaðamenn, höfði til fyrirtækja og jafnvel stjórnvalda. Aðdáendahópur hans, yfir 40 milljónir fylgjenda, er aðlaðandi bæði innan og utan fótboltaheimsins. En hlutverkin verða að vera aðgreind," segir í grein ítalska miðilsins sem fjallar um Romano.
Þar er einnig fjallað um það að Romano varð nýlega eini stjórnarmaður Wegofar srl, nýstofnaðs fyrirtækis sem hefur það að markmiði að „kynna vörur eða þjónustu á samfélagsmiðlum eða öðrum vettvangi“.
Athugasemdir


