Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 14:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Linda Líf og Emelía á skotskónum
Kvenaboltinn
Linda Líf Boama.
Linda Líf Boama.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Linda Líf Boama var á skotskónum þegar Íslendingalið Kristianstad tryggði sig áfram í sænsku bikarkeppninni.

Hún kom Kristianstad á bragðið í 1-3 sigri gegn Malmö. Linda Líf, Alexandra Jóhannsdóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir voru allar í byrjunarliði Kristanstad sem er komið í undanúrslit bikarsins. Þjálfari Kristianstad er Nik Chamberlain sem gerði Breiðablik að tvöföldum meistara á síðustu leiktíð.

Í Danmörku var Emelía Óskarsdóttir þá á skotskónum er FC Kaupmannahöfn vann góðan 2-0 sigur á OB. Emelía sem gekk í raðir FCK fyrir ekki svo löngu síðan gerði fyrra mark danska stórliðsins.

Þá spilaði Birta Georgsdóttir allan leikinn í 1-1 jafntefli Genoa gegn Parma á Ítalíu. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var ekki með Parma vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner