Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 22:34
Brynjar Ingi Erluson
Nökkvi og Tómas Bent fóru meiddir af velli í fyrri hálfleik
Tómas Bent meiddist í tapi Hearts
Tómas Bent meiddist í tapi Hearts
Mynd: Hearts
Miðjumaðurinn Tómas Bent Magnússon fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í 1-0 tapi Hearts gegn Kilmarnock í skosku úrvalsdeildinni í kvöld.

Eyjamaðurinn hefur komið með sterka nærveru inn í liðið hjá Hearts sem hefur verið besta lið Skotlands á tímabilinu.

Hann meiddist hins vegar í fyrri hálfleiknum og var skipt af velli þegar tíu mínútur voru eftir af honum.

Hearts endaði á að tapa leiknum með einu marki gegn engu en er samt áfram á toppnum með 63 stig, tveimur stigum meira en Celtic.

Nökkvi Þeyr Þórisson var fremstur hjá Telstar sem tapaði fyrir Heerenveen, 3-0, í hollensku úrvalsdeildinni.

Hann meiddist einnig og þurfti að yfirgefa völlinn á 23. mínútu, en það kemur betur í ljós á næstu dögum hvort hann geti náð næsta leik gegn PSV eða ekki.

Telstar er í 16. sæti deildarinnar með 24 stig.

Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með AEL Larissa sem gerði 1-1 jafntefli við Asteras Tripolis í grísku úrvalsdeildinni.

Larissa er í 12. sæti deildarinnar með 22 stig en á ekki lengur möguleika á að komast í umspil um sæti í Sambandsdeildina.
Athugasemdir
banner