Gleðilegan laugardag. Við byrjum hann á því að kíkja á það helsta sem er í slúðrinu.
Marcus Rashford (26) gæti snúið aftur til Manchester United í sumar eftir lánsdvöl hjá Barcelona. Pedro Neto (26) hjá Chelsea er möguleiki sem Börsungar eru að skoða. (Mundo Deportivo)
Rashford vill helst vera áfram hjá Barcelona en viðræðurnar á milli félaganna eru í biðstöðu. Deco, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, hefur lagt það til við Man Utd að Rashford komi í annað tímabil á láni svo Katalóníustórveldið fái meiri tíma til að borga fyrir Rashford. (Talksport)
Tottenham hefur teiknað upp lista af möguleikum sem gætu tekið við af Igor Tudor ef félagið ákveður að gera aðra stjórabreytingu. (The Athletic)
Manchester United er með fimm manna lista til að taka við liðinu í sumar. Á þeim lista eru Oliver Glasner, Andoni Iraola, Unai Emery, Roberto De Zerbi og Julian Nagelsmann. (The Sun)
Napoli mun kaupa Rasmus Höjlund (23) frá Manchester United í sumar fyrir 44 milljónir evra. (Fabrizio Romano)
Arsenal er að undirbúa formlegt tilboð í Leon Goretzka (31), miðjumann Bayern München, sem verður samningslaus í sumar. (Teamtalk)
AC Milan hefur einnig sýnt Goretzka áhuga en það er staðfest að hann mun yfirgefa Bayern. (Goal)
Liverpool mun fá samkeppni frá Barcelona ef félagið ákveður að reyna við Alessandro Bastoni (26), miðvörð Inter. (Sport)
Man Utd er líklegasta liðið til að kaupa Tyler Adams (27) frá Bournemouth í sumar. Chelsea og Liverpool hafa einnig áhuga á bandaríska miðjumanninum. (Teamtalk)
Arsenal gæti fengið um 1,7 milljónir punda ef Juventus ákveður að kaupa pólska varnarmanninn Jakub Kiwior (26) í sumar. Kiwior yfirgaf Arsenal síðasta sumar og fór til Porto þar sem hann hefur spilað vel. (Sun)
Athugasemdir


