Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   lau 14. mars 2026 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Öruggt hjá Real Madrid - Besta tímabil Valverde til þessa
Federico Valverde heldur áfram að skora
Federico Valverde heldur áfram að skora
Mynd: EPA
Real Madrid heldur pressunni á Barcelona í baráttunni um Spánarmeistaratitilinn en Madrídingar unnu sannfærandi 4-1 sigur á Elche á Santiago Bernabeu í kvöld.

Madrídingar eru án margra lykilmanna og hefur Alvaro Arbeloa þurft að vera svolítið frumlegur í liðsvali.

Hann var með 18 ára gamlann Thiago Pitrach á miðsvæðinu og svo komu nokkur óþekkt nöfn inn af bekknum á borð við Daniel Yanez, Diego Aguado, Cesar Palacios og Manuel Moran. Allt leikmenn sem eru að spila með B-liðinu.

Vissulega voru margir öflugir leikmenn á vellinum sem nýttu reynslu sína í að loka leiknum. Antonio Rüdiger og Federico Valverde skoruðu undir lok fyrri hálfleiksins.

Valverde hefur verið sjóðandi heitur á tímabilinu en hann skoraði þrennu í 3-0 sigrinum á Manchester City í Meistaradeildinni í vikunni og alls komið að 21 marki á tímabilinu sem er hans besta tímabil fyrir Real Madrid ef horft er á mörk og stoðsendingar.

Dean Huijsen gerði þriðja markið fyrir Real á 66. mínútu áður en hinn ungi Manuel Moran setti boltann í eigið net fimm mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.

Tyrkneska undrið Arda Güler sá þó til þess að sigla þessu örugglega heim og er Real Madrid komið með 66 stig, aðeins stigi á eftir erkifjendum sínum í Barcelona.

Nahuel Molina var hetja Atlético Madríd í 1-0 sigri á Getafe í grannaslag í Madríd og þá unnu nýliðar Oviedo lið Valencia með sömu markatölu.

Girona pakkaði Athletic saman, 3-0, á heimavelli. Hugo Rincon, Azzedine Ounahi og Claudio Echeverri gerðu mörkin.

Real Madrid 4 - 1 Elche
1-0 Antonio Rudiger ('39 )
2-0 Federico Valverde ('44 )
3-0 Dean Huijsen ('66 )
3-1 Manuel Angel ('85 , sjálfsmark)
4-1 Arda Guler ('89 )

Atletico Madrid 1 - 0 Getafe
1-0 Nahuel Molina ('8 )
Rautt spjald: Abdel Abqar, Getafe ('55)

Oviedo 1 - 0 Valencia
1-0 David Costas ('30 )

Girona 3 - 0 Athletic
1-0 Hugo Rincon ('4 )
2-0 Azzedine Ounahi ('77 )
3-0 Claudio Echeverri ('90 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 32 27 1 4 85 30 +55 82
2 Real Madrid 32 23 4 5 67 30 +37 73
3 Villarreal 31 19 4 8 56 36 +20 61
4 Atletico Madrid 32 17 6 9 53 35 +18 57
5 Betis 32 12 13 7 48 40 +8 49
6 Celta 32 11 11 10 44 41 +3 44
7 Getafe 32 13 5 14 28 32 -4 44
8 Real Sociedad 32 11 9 12 49 49 0 42
9 Athletic 32 12 5 15 34 45 -11 41
10 Osasuna 32 10 9 13 37 39 -2 39
11 Espanyol 31 10 8 13 37 48 -11 38
12 Girona 32 9 11 12 35 48 -13 38
13 Valencia 32 9 9 14 35 47 -12 36
14 Elche 32 8 11 13 42 49 -7 35
15 Mallorca 32 9 8 15 40 49 -9 35
16 Vallecano 31 8 11 12 29 38 -9 35
17 Sevilla 31 9 7 15 39 51 -12 34
18 Alaves 32 8 9 15 36 48 -12 33
19 Levante 31 7 8 16 35 50 -15 29
20 Oviedo 31 6 9 16 24 48 -24 27
Slapp
banner
banner
banner