Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   lau 14. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Bayern heimsækir Leverkusen
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er stórleikur á dagskrá í efstu deild þýska boltans í dag þegar Bayer Leverkusen tekur á móti toppliði og Þýskalandsmeisturum FC Bayern München.

Leverkusen er aðeins þremur stigum frá meistaradeildarsæti þegar níu umferðir eru eftir af deildartímabilinu en leikmenn liðsins mæta þreyttir til leiks eftir erfitt jafntefli á heimavelli gegn Arsenal í miðri viku.

FC Bayern valtaði yfir Atalanta í vikunni og er hægt að búast við að hvorugt lið gefi neitt eftir í dag. Bayern er þegar komið með aðra hönd á Þýskalandsmeistaratitilinn og er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir stórsigurinn í Bergamó.

Borussia Dortmund, sem situr í öðru sæti og er ellefu stigum á eftir Bayern, spilar við Augsburg á sama tíma og Hoffenheim mætir Wolfsburg sem er aðeins með 20 stig og gæti verið að falla niður um deild.

Eintracht Frankfurt á þá heimaleik áður en Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í FC Köln heimsækja Hamburger í afar mikilvægum slag. Köln er í harðri fallbaráttu og þarf á sigri að halda.

Leikir dagsins
14:30 Dortmund - Augsburg
14:30 Hoffenheim - Wolfsburg
14:30 Frankfurt - Heidenheim
14:30 Leverkusen - Bayern
17:30 Hamburger - Köln
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 29 24 4 1 105 27 +78 76
2 Dortmund 29 19 7 3 60 29 +31 64
3 Stuttgart 29 17 5 7 60 38 +22 56
4 RB Leipzig 29 17 5 7 56 36 +20 56
5 Leverkusen 29 15 7 7 59 39 +20 52
6 Hoffenheim 29 15 6 8 57 43 +14 51
7 Frankfurt 29 11 9 9 54 54 0 42
8 Freiburg 29 11 7 11 42 47 -5 40
9 Mainz 29 8 9 12 35 44 -9 33
10 Augsburg 29 9 6 14 36 53 -17 33
11 Union Berlin 29 8 8 13 33 50 -17 32
12 Hamburger 29 7 10 12 32 45 -13 31
13 Köln 29 7 9 13 43 50 -7 30
14 Gladbach 29 7 9 13 35 49 -14 30
15 Werder 29 7 7 15 32 52 -20 28
16 St. Pauli 29 6 7 16 25 50 -25 25
17 Wolfsburg 29 5 6 18 39 65 -26 21
18 Heidenheim 29 4 7 18 32 64 -32 19
Slapp
banner
banner
banner